“Tré sem blómstrar á hverju vori,
minning sem sefur aldrei”
MINNINGARTRÉ
Lifandi tré minnisvarði þar sem ástvinir geta heiðrað hinn látna og gefið til baka til náttúrunnar.

Vistvæn jarðsetning
Allar pakkningar eru lífbrjótanlegar og tréið gefur náttúrunni til baka.
Lifandi minning
Tréið lifir og dafnar með árunum – minningin heldur áfram að blómstra.
Kærleiksrík kveðja
Fallegt kveðjukort og fræ fylgja með til að planta með minningunni.
Hvað er Minningartré?
Minningartré er vistvæn og falleg leið til að kveðja ástvini.
Við bjóðum upp á jarðsetningu þar sem tré er gróðursett í stað hefðbundins legsteins. Með trénu fylgir platti með QR kóða sem vísar á persónulega minningarsíðu þar sem hægt er að skrifa minningarorð og skilja eftir kveðjur.

Minningarsíðan sem fylgir hverju tréi
Þegar þú kaupir Minningartré færðu aðgang að sérsniðinni minningarsíðu. Þar getur þú deilt myndum, skrifað minningarorð og haldið minningu ástvinar lifandi. QR kóðinn á plattanum vísar beint inn á þessa síðu, hvar og hvenær sem er.

Hvernig virkar þetta?
Farðu inn í vefverslunina og veldu tré, ker og skilti með QR kóða.
Bættu í körfu og ljúktu við pöntunina. Eftir greiðslu færðu aðgang að þínu svæði þar sem þú getur búið til minningarsíðu, skrifað texta og sett inn myndir.
Í pósti færðu svo platta með QR kóða sem vísar á síðuna þína. Gestir geta skannað kóðann, skoðað síðuna og skilið eftir kveðjur.
Vörurnar
-

Kort – Gróðursetjanlegt minningarkort
kr.1.990 -

Umhverfisvæn taska
kr.7.990 -

Ker úr bambus – Lífrænt og niðurbrjótanlegt
Price range: kr.14.000 through kr.17.000 -

Skilti – QR kóða skilti með „Mitt svæði“
kr.29.990 -

Minningartré – Fullkominn minningarpakki
Price range: kr.69.990 through kr.79.990
Framtíðarsýn Minningartrés
Við trúum því að jarðsetningar framtíðarinnar verði hluti af náttúrunni.
Minningartré snýst ekki aðeins um að kveðja, heldur að gefa til baka.
Við viljum skapa fallega garða þar sem tré vaxa í stað legsteina, fuglar syngja og fólk getur gengið, setið og minnst í friði.
Nýjustu færslur

Hvað er græn jarðsetning?
Græn jarðsetning er falleg og vistvæn leið til að kveðja. Hún sameinar virðingu fyrir lífinu,…

