Um okkur
Hvað er Minningartré
Minningartré er lifandi tré minnisvarði þar sem ástvinir geta heiðrað hinn látna og gefið til baka til náttúrunnar. Í boði verður að velja á milli þriggja trjátegunda: Reynivið, Stafafuru og Birkitré og öll koma þau í lífbrjótanlegum fallegum umbúðum.
Minningartré mun vera fyrst til að koma með QR kóða sem fylgir grafreitnum, QR kóðinn vísar á mitt svæði hins látna. Þar geta aðstandendur sett inn minningargrein hins látna og skilið eftir skilaboð. Einnig sjáum við fyrir okkur að einstaklingar, sem hugsa sér að verða að lifandi tréminnisvarða, geti sjálfir verið búnir að skilja eftir myndband eða skilaboð fyrir aðstandendur.


Hugmynd Minningartrés
Hugmynd Minningartré er sú að vinna á plássleysi Kirkjugarðanna, að öll fjölskyldan geti hvílt undir sama trénu og vildum við tæknivæða þennan vettvang, koma með QR kóða sem beinir inn á fallega minningarsíðu.
Markmið verkefnisins
Markmið verkefnisins er að gera Ísland grænna og finna lausn á þeim vanda sem kirkjugarðar landsins standa frammi fyrir, sem er plássleysi. Ásamt því að tengja tækni og jarðsetningar saman. Lausnin okkar er að búa til kirkjugarða sem verða fallegir garðar umvafnir skógrækt. Við sjáum fyrir okkur hálgerða listigarða þar sem Íslensk náttúra verður okkar fyrirmynd. Fólk getur fengið sér göngutúr og setið á bekkjum inn í garðinum og notið þess að horfa á okkar fallegu náttúru.
Eftir að hafa framkvæmt markaðsrannsóknir, með rýnihópum, sáum við þörfina á breytingum jarðsetninga. Meðal annars var spurt út í hvort einstaklingar myndu kjósa að gróðursetja tré ofan á sína ösku og kom þar fram að yfir 70% myndu kjósa þann valmöguleika.
Við kynntum okkur vinnubrögð nágrannaþjóða Íslands þar sem að sambærileg verkefni hafa gengið vonum framar. Hvort sem er horft á þetta frá sjónarhorni kirkjugarðanna, ríkis-, bæjar- og sveitarfélaga eða aðstandenda. Sjálfar hafa umsjónaraðilar Minningartrés búið víðsvegar um heiminn, meðal annars í Kína, Skotlandi, Danmörku og Portúgal og hafa því séð hvernig þessi valmöguleiki hefur þróast í þeim löndum. Fyrirmyndir nýsköpunarverkefnisins eru kirkjugarðar í Danmörku, Svíþjóð og í Bretlandi.
Allt sem tengist vörunni kemur í umhverfisvænum pakkningum og lífbrjótanlegum umbúðum. Við vildum veita aðstandenum aðeins meira en tréið sjálft og höfum við því hannað falleg kveðjukort úr lífbrjótanlegu efni þar sem einstaklingar geta skrifað nokkrar línur og gróðursett með trénu. Ásamt kortunum koma einnig túlípana laukar sem munu spretta upp á hverju ári og Gleymmérey fræ.
Minningartré mun vera unnið í samvinnu með Kirkjugörðum Reykjavíkur og er jafnframt búið að gera samning við
„Tré sem blómstrar á hverju vori, minning sem sefur aldrei.”
Starfsfólk

Dagbjört Jónsdóttir
Markaðsfræðingur

Dagný R.Haraldsdóttir
Lögfræðingur

Guðný M. Guðlaugsdóttir
Landslagsarkitekt